2.6.2010 | 09:17
Umsögn kennara
Rakel Rut þú ert samviskusöm , metnaðarfull, með falleg vinnubrögð og þægilega nærveru.
HelgaBloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2010 | 20:06
Gæluverkefnið mitt
Við áttum að gera heimaverkefni um hvað sem við vildum. Ég valdi að gera plakat um skjaldbökur vegna þess að ég vildi gera um eitthvað skrítið dýr sem ég vissi eiginlega ekkert um. Við fengum 3 vikur til að vinna þetta og mér gekk mjög vel að vinna þetta verkefni og fór eftir verkáætlun. Ég kláraði verkefnið á fyrstu vikunni og skilaði því þá svolítið snemma. Þá sagði Helga mér að gera verkefni um eitthvað annað. Þá valdi ég að gera movie maker myndband um ballett. Það gekk líka vel og kom mjög vel út. Síðan áttum við að gera kynningu og það gekk líka bara ljómandi vel. Mér finnst svolítið erfitt að gera verkefni um eitthvað sem við veljum sjálf því að annaðhvort er ég með svo mikið í huga og veit ekki hvað ég á að velja eða að mér dettur ekkert í hug til að gera um. Það var mjög gaman og öðruvísi að gera svona verkefni og fræðandi.
Hérna er Movie maker myndbandið mitt um ballett:
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2010 | 19:50
Tyrkjaránið - Leikrit
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2010 | 14:01
Enska
Í ensku höfum við undanfarna daga verið að vinna með sögu Anne Frank. Við áttum að gera Photostory myndband um hana og tala síðan inná. Mér fannst saga hennar mjög merkileg og það kom mikið á óvart hvað þau náðu að fela sig lengi. Ég kann núna næstum allt um Anne Frank síðan að við gerðum þetta verkefni og mér gekk ágætlega að gera það nema að ég þurfti að bíða frekar lengi eftir því að tala inná. Við vorum einnig að gera vinnuhefti sem kallast ,,my Projects". Í það áttum við að gera nokkur enskuverkefni. Þau eru: Ljóð um mig sem kallast Myself, Tvær fréttir á ensku og umsögn um frjálslestrarbók sem við lásum.
Hérna fyrir ofan er myndbandi mitt sem ég gerði um anne Frank.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2010 | 11:05
Danska
Í vetur höfum við verið að vinna mjög fjölbreytt verkefni. Við gerðum t.d. Danska fjölskyldu, spil, vorum að vinna í 2 lesheftum sem eru ,,en tur i zoo" og ,,i Tivoli". Þegar við gerðum spilið vorum við 2-4 saman í hóp og máttum ráða hvernig við höfðum spilið. Við áttum að hafa það á dönsku og við gerðum reglurnar á dönsku og skrifuðum á reitina á dönsku. Ég og Aðalheiður vorum saman með spilið ,,Spille kasino" eða spilavíti. Þegar að við gerðum fjölskylduna áttum við að vera 3-5 saman í hóp og gerðum plakat með einni fjölskyldu sem við "sömdum". Ég var með Bergrósu, Alexander og Elmari inga í hóp og okkur gekk bara ágætlega. Við vorum líka að vinna í vinnubókum klar parat, D-bog, A-Bog og B-bog. Við glósuðum í D-bog og gerðum líkamsparta og nöfn á hlutum. Síðan gerðum við líka matseðil í hópum og áttum að gera aðalrétti forrétti og eftirrétti. Síðan fundum við nafn á veitingastaðinn og kynntum fyrir bekkinn. Þá var ég Með Bergrósu og Aðalheiði í hóp. Mér fannst bara skemmtilegt að vinna í dönsku og gaman í hópaverkefnum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2010 | 10:36
Stærðfræði - Hringekja
Við höfum verið í stærðfræði hringekju á föstudögum, mér fannst það bara fínt en samt svolítið pirrandi að allur árgangurinn þarf að skipta um stofur en ekki bara kennararnir sem er miklu fljótara.
Hjá Önnu vorum við að semja stærðfræðiljóð og gera mynstur.
Hjá Auði var hugarreikningur og nams.is, síðan gerðum við stundum einhverjar þrautir sem voru mis erfiðar og dæmi á talnalínu.
Hjá Helgu vorum við mest að vinna með stærðfræðiþrautir, metrakerfið, margföldun, ferhyrninga af ýmsu tagi o.fl.
Mér fannst skemmtilegast að vera hjá Önnu af því að við vorum að gera mynstur og ljóð. Mér fannst líka skemmtilegt hjá Helgu af því að hún er skemmtilegasti kennarinn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2010 | 13:12
Fuglar- Powerpoint
Bloggar | Breytt 26.5.2010 kl. 11:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2010 | 12:58
Fuglar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2010 | 10:58
Hallgrímur Pétursson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)